Afhverju að fá viðburðastjóra í verkið? Hér eru fimm góðar ástæður.
Að skipuleggja viðburð á að vera skemmtilegt verkefni. En í rauninni lendir skipulagið oft hjá fólki sem er nú þegar með fullt af verkefnum á sinni könnu. Þá getur spennan fljótt breyst í álag þegar nær dregur stóra deginum.
Hvort sem um er að ræða árshátíð, starfsmannadag, ráðstefnu, afmælishátíð fyrirtækis eða annan viðburð, þá eru ótal smáatriði sem þarf að huga að. Þegar þau leggjast ofan á dagleg verkefni starfsfólks getur það haft áhrif bæði á undirbúninginn og upplifunina sjálfa.
Þess vegna velja sífellt fleiri fyrirtæki að fá faglega viðburðastjóra í lið með sér.
Hér eru fimm góðar ástæður fyrir því.
1. Einfaldara ferli og skýr ábyrgð
Vel heppnaður viðburður byggir á samspili margra þátta. Velja þarf staðsetningu, skipuleggja dagskrá, samræma veitingar, tæknimál, skreytingar, afþreyingu og margt fleira.
Í stað þess að eiga samskipti við fjölda þjónustuaðila færðu einn tengilið sem heldur utan um heildarmyndina og tryggir að allir þættir vinni saman. Það sparar tíma, dregur úr misskilningi og einfaldar allt ferlið.
2. Minna álag á starfsfólkið
Viðburðastjórnun er sérhæft verkefni og sjaldnast hluti af starfslýsingu starfsfólks.
Þegar skipulagning viðburðar bætist við hefðbundin verkefni skapast auðveldlega aukið álag. Eftir því sem viðburðurinn nálgast verður verkefnið oft stærra og tímafrekara en upphaflega var gert ráð fyrir.
Með því að fela fagfólki skipulagið getur starfsfólkið einbeitt sér að sínum kjarnaverkefnum og notið viðburðarins sem þátttakendur þegar stóra stundin rennur upp.
3. Betri nýting á tíma og fjármagni
Margir líta fyrst og fremst á kostnaðinn við að fá utanaðkomandi aðila. En það sem gleymist oft er verðmæti tímans sem fer í undirbúninginn.
Sérfræðingur sem vinnur við viðburði daglega þekkir ferlið, veit hvað þarf að gera og getur tekið ákvarðanir hratt og örugglega. Það sem gæti tekið starfsfólk margar vikur að skipuleggja getur oft verið leyst á broti af þeim tíma.
Þannig sparast bæði tími, orka og óbeinn kostnaður sem fylgir því að taka starfsfólk frá öðrum verkefnum.
4. Reynsla sem skilar betri upplifun
Af hverju að finna upp hjólið þegar hægt er að byggja á reynslu?
Viðburðastjórar hafa séð hvað virkar og hvað virkar ekki. Þeir búa yfir hugmyndum, tengslaneti og reynslu sem getur lyft viðburði úr því að vera góður yfir í að verða eftirminnilegur.
Oft eru það litlu atriðin sem skipta mestu máli, óvænt augnablik, skapandi lausnir eða smáatriði sem gestir muna eftir löngu síðar.
5. Sterkari stemning og meiri þátttaka
Þegar starfsfólk þarf ekki að eyða tíma í skipulag og framkvæmd getur það tekið virkari þátt í að byggja upp eftirvæntingu og spennu fyrir viðburðinn. Faglegt viðburðafyrirtæki getur svo stutt við það með skapandi hugmyndum, samskiptum og lausnum sem auka þátttöku og gera upplifunina enn sterkari.
Þegar vel tekst til verður viðburðurinn ekki bara einn dagur á dagatalinu heldur sameiginleg upplifun sem styrkir tengsl, eykur starfsánægju og skilur eftir sig jákvæð spor.
Leyfið ykkur að njóta viðburðarins
Bestu viðburðirnir verða til þegar einhver hefur yfirsýn yfir heildina og sér um að smáatriðin séu í lagi.
Við hjá Magio hjálpum fyrirtækjum að skipuleggja og framkvæma viðburði sem ná markmiðum sínum, hvort sem þau snúast um að efla fyrirtækjamenningu, fagna árangri eða skapa ógleymanlega upplifun.
Þannig geta stjórnendur og starfsfólk einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli: að taka þátt, njóta stundarinnar og skapa góðar minningar saman.

