Árshátíð er ekki bara partý – hún er fjárfesting

Á flestum vinnustöðum er árshátíðin fastur liður í starfseminni.

En stöldrum aðeins við og spyrjum: Af hverju höldum við árshátíð?

Erum við að nýta öll þau tækifæri sem hún býður upp á?

Árshátíð er nefnilega miklu meira en skemmtilegt kvöld með góðum mat og skemmtidagskrá. Hún er tækifæri til að efla samstöðu, fagna árangri liðins árs og skapa kraft fyrir verkefnin fram undan. Þegar vel tekst til getur árshátíð styrkt fyrirtækjamenningu, aukið starfsánægju og dýpkað tengsl starfsfólks við vinnustaðinn.

Þess vegna ætti undirbúningurinn og eftirfylgnin að skipta ekki minna máli en kvöldið sjálft.

Við hjá Magio lítum á árshátíðina sem fjárfestingu, en ekki bara enn eitt partýið.

Stemningin byrjar löngu fyrir árshátíðina

Mikilvægt er að nýta aðdragandann til að byggja upp eftirvæntingu og virkja starfsfólk. Með réttum aðgerðum er hægt að auka þátttöku og tryggja að sem flestir upplifi sig sem hluta af upplifuninni.

Það þarf að hafa í huga fjölbreyttan hóp starfsfólks, mismunandi starfshlutföll, vinnustaði og áhugasvið. Þegar allir fá tækifæri til að taka þátt skapast sterkari tenging við viðburðinn sjálfan.

Meðal þess sem getur skapað skemmtilega stemningu í aðdragandanum eru:

  • Litlir glaðningar eða óvæntar uppákomur á vinnustaðnum.

  • Sýnileg skráning eða niðurtalning sem vekur eftirvæntingu.

  • Léttir netleikir, spurningakeppnir eða önnur skemmtileg samskipti.

  • Þemaskreytingar sem umbreyta vinnuumhverfinu smám saman.

  • Stjórnendur sem taka virkan þátt og leiða með góðu fordæmi, því eftir höfðinu dansa limirnir.

Kvöldið sem sameinar

Árshátíðarkvöldið er hápunkturinn þar sem allt kemur saman. Þar gefst einstakt tækifæri til að þakka starfsfólki fyrir framlag þess, fagna árangri og minna á sameiginleg markmið.

Þegar dagskrá, umgjörð og upplifun vinna saman verður kvöldið ekki bara skemmtilegt heldur eftirminnilegt. Það er einmitt á slíkum stundum sem fyrirtækjamenning verður sýnileg og starfsfólk upplifir stoltið yfir því að vera hluti af liðinu.

Eftirleikurinn skiptir máli

Góð árshátíð endar ekki þegar síðasti gesturinn fer heim.

Dagarnir á eftir eru kjörið tækifæri til að viðhalda jákvæðri orku og styrkja áhrif viðburðarins. Deilið myndum og myndböndum, rifjið upp skemmtileg augnablik og haldið samtalinu áfram á innri miðlum fyrirtækisins.

Jafnvel litlir hlutir geta haft áhrif. Sérstakur hádegisverður, skemmtileg samantekt eða einföld þakkarskilaboð geta hjálpað til við að halda góðri stemningu á lofti og lengja líftíma upplifunarinnar.

Af hverju að fá viðburðasérfræðinga í lið með sér?

Margir velta fyrir sér hvort það borgi sig að fá utanaðkomandi aðila til að sjá um árshátíðina. Reynslan sýnir að það er oft bæði hagkvæmt og skynsamlegt.

Þegar starfsfólk þarf að skipuleggja viðburð samhliða sínum daglegu verkefnum getur það skapað álag og tekið tíma frá mikilvægustu verkefnum fyrirtækisins. Með því að fela fagfólki skipulagið getur starfsfólkið einbeitt sér frekar að því að mynda stemmingu innanhús fyrir árshátíðinni og svo notið kvöldsins sem þátttakendur frekar en skipuleggjendur.

Við hjá Magio sjáum um allt frá hugmyndavinnu og þemahönnun til dagskrár, afþreyingar og framkvæmdar. Markmiðið er einfalt: að skapa árshátíð sem starfsfólk talar um löngu eftir að henni lýkur.

Árshátíð þarf ekki að vera bara einn skemmtilegur viðburður á dagatalinu. Hún getur verið öflugt tæki til að efla fyrirtækjamenningu, styrkja tengsl starfsfólks og auka stoltið gagnvart vinnustaðnum.

Ef þú vilt að næsta árshátíð verði meira en bara partý, þá skulum við tala saman. Við hjá Magio hjálpum fyrirtækjum að breyta góðri hugmynd í upplifun sem skilar raunverulegu virði, bæði fyrir starfsfólkið og fyrirtækið í heild.

Previous
Previous

Afhverju að fá viðburðastjóra í verkið? Hér eru fimm góðar ástæður.

Next
Next

10 jólalegar hugmyndir fyrir skrifstofuna í desember.