Nokkrar hugmyndir til að hafa gaman í vinnunni.

Öflug fyrirtækjamenning byggist ekki eingöngu á stórum viðburðum eins og árshátíðum eða starfsdögum. Oft eru það litlu augnablikin í dagsins önn sem hafa mest áhrif á líðan starfsfólks og tengslin á vinnustaðnum.

Einföld uppbrot á vinnudeginum skapað jákvæðara vinnuumhverfi. Þau þurfa hvorki að vera flókin né kostnaðarsöm, það mikilvægasta er að skapa tækifæri fyrir fólk til að hittast, hlæja saman og kynnast betur.

Á mörgum vinnustöðum starfar fólk á ólíkum stöðum og ekki allir sitja við tölvu allan daginn. Þá er mikilvægt að nýta innranet, spjallrásir eða aðra sameiginlega vettvanga til að tryggja að sem flestir geti tekið þátt.

Við hjá Magio höfum tekið saman nokkrar hugmyndir sem hafa reynst vel hjá fyrirtækjum sem vilja efla stemninguna á vinnustaðnum.

Vísindaferðir milli deilda

Ein besta leiðin til að auka samvinnu er að hjálpa fólki að skilja betur hvað samstarfsfólkið gerir.

Skipuleggið reglulegar „vísindaferðir“ þar sem ein deild býður hinum í heimsókn, segir frá verkefnum sínum og deilir innsýn í starfsemina. Léttar veitingar, skemmtilegur ísbrjótur og góðar samræður gera upplifunina enn betri.

Markmiðið gæti verið að ein deild bjóði í heimsókn á hverjum ársfjórðungi og afhendi svo næstu deild keflið.

Veitingafjör sem lífgar upp á daginn

Það þarf stundum ekki meira en smá góðgæti til að breyta venjulegum vinnudegi í skemmtilega upplifun.

Hægt er að setja upp:

  • Poppbar með óvæntum bragðtegundum og kryddi.

  • Kakóbar með rjóma, sykurpúðum, nammi og öðru góðgæti.

  • Smakkdaga þar sem starfsfólk metur páskaegg, smákökur eða aðra árstíðabundna rétti.

  • „Komdu með uppáhaldið þitt“ þar sem starfsfólk deilir sínu uppáhaldsnammi eða réttum.

  • Þemadaga í mötuneytinu og skreyta matsalinn í stíl

  • Óafengur Happy hour á miðjum degi

Slíkar uppákomur skapa oft meiri umræðu og gleði en ætla mætti.

Minigolfmót á skrifstofunni

Hvers vegna ekki að breyta vinnustaðnum í minigolfvöll?

Lið geta hannað sínar eigin brautir úr því sem fyrir er á vinnustaðnum og síðan keppt sín á milli. Slík keppni kallar fram bæði sköpunargáfu, samvinnu og heilbrigðan keppnisanda.

Dekurdagur fyrir starfsfólkið

Í hraða dagsins getur verið verðmætt að gefa fólki tækifæri til að staldra við og hlaða batteríin.

Dekurdagur getur meðal annars falið í sér:

  • Stutt nudd eða slökunarmeðferðir.

  • Leigja nuddstóla í sameiginlegt rými

  • Hugleiðslu eða Yoga Nidra tíma.

  • Fyrirlestra um vellíðan og sjálfsrækt.

  • Litlar gjafir eða snyrtivöruprufur við vinnustöðvar.

  • Aðra upplifun sem hjálpar starfsfólki að slaka á og endurnæra sig.

  • Núvitundarganga í hádeginu

Myndakeppni sem fær fólk til að kynnast

Myndaleikir eru einföld leið til að skapa samtöl og tengsl.

Starfsfólk sendir inn myndir sem birtast nafnlaust og síðan giska samstarfsfélagar á hver á hvaða mynd.

Þemun geta verið:

  • Barnamyndir.

  • Fermingarmyndir.

  • Gæludýr.

  • Áhugamál.

  • Ferðalög.

Einnig er hægt að vera með myndaþrautaleik þar sem keppendur eiga að leysa þrautir myndrænt, hægt að skipta í lið eða hafa þetta einstaklingskeppni. Þrautir eins og „Segðu mér að þú vinnir hér án þess að segja mér það“ eða túlkun á gildum fyrirtækisins. Túlka bíómynd með einni mynd eða dægurlaga texta.

Hrósveggur sem dreifir jákvæðni

Við vitum öll hversu miklu máli hrós skiptir.

Setjið upp sýnilegan hrósvegg þar sem starfsfólk getur skilið eftir jákvæð skilaboð til samstarfsfélaga eða deilt hrósi frá viðskiptavinum.

Hrósveggurinn getur verið bæði á vegg í kaffistofunni og á innraneti fyrirtækisins. Með tímanum getur hann jafnvel þróast í þakklætisvegg, hugmyndavegg eða uppskriftavegg.

Olympíuleikarnir í skrifstofutækni

Það er fátt sem sameinar fólk eins vel og góð keppni.

Skipuleggið „Olympíuleika“ með léttum og skemmtilegum greinum eins og:

  • Bréfaklemmulengju.

  • Ruslatunnuboðhlaupi.

  • Skrifstofustólarallýi.

  • Pappírskastkeppni.

  • Pílukasti eða öðrum einföldum áskorunum.

Markmiðið er ekki endilega að vinna heldur að hlæja saman.

“TED TALK” frá starfsfólkinu

Á hverjum vinnustað leynist ótrúleg þekking, reynsla og hæfileikar.

Gefið starfsfólki vettvang til að halda stutt erindi í hádeginu um áhugamál sín, ferðalög, sérþekkingu eða reynslu. Kannski leynist þar efnilegur uppistandari, tónlistarmaður eða ævintýramaður sem samstarfsfólkið veit lítið um.

Slíkir viðburðir styrkja tengsl og hjálpa fólki að sjá nýjar hliðar á samstarfsfélögum sínum.

Dansstund á miðjum vinnudegi

Stundum þarf bara að hækka tónlistina.

Með því að breyta fundarherbergi í tímabundið dansgólf og bjóða upp á stutta dansstund er hægt að gefa starfsfólki bæði hreyfingu, gleði og orku fyrir restina af deginum.

Það þarf ekki að vera flókið – góður lagalisti, smá stemning og vilji til að sleppa fram af sér beislinu getur gert kraftaverk.

Karokee fundur

Breytið einu fundarherberginu í karokeeherbergi í einn dag. Ljós, props mögulega lítið svið og brjálað stuð. Tekur eitt, tvö lög og heldur svo áfram með vinnudaginn.

Smá uppbrot, mikil áhrif

Það þarf ekki alltaf stóra viðburði til að skapa sterka vinnustaðamenningu. Regluleg og skemmtileg uppbrot geta haft veruleg áhrif á starfsánægju, samvinnu og tengsl innan fyrirtækisins.

Það mikilvægasta er að skapa tækifæri fyrir fólk til að hittast, hlæja saman og njóta þess að vera hluti af sama liðinu.

Og ef ykkur vantar fleiri hugmyndir eða aðstoð við að hrinda þeim í framkvæmd, þá erum við hjá Magio alltaf til í að hjálpa.

Next
Next

Afhverju að fá viðburðastjóra í verkið? Hér eru fimm góðar ástæður.