Magio

Hjá Magio sérhæfum við okkur í skipulagningu og framkvæmd viðburða sem skapa raunverulegt virði. Markmið okkar er að hver viðburður endurspegli gildi, menningu og markmið viðskiptavina okkar, með áherslu á fagmennsku, skapandi lausnir og sjálfbærni þegar við á.

Við bjóðum upp á heildstæða þjónustu, allt frá hugmyndavinnu og ráðgjöf til framkvæmdar og eftirfylgni. Hvort sem um er að ræða vinnufundi, starfsdaga, árshátíðir, fjölskyldudaga, markaðsviðburði eða önnur tilefni, tryggjum við vandaða framkvæmd og eftirminnilega upplifun.

Við leggjum áherslu á að velja ábyrgar lausnir þar sem því verður við komið, draga úr sóun og huga að umhverfisáhrifum viðburðarins. Með markvissum ákvörðunum og góðu samstarfi finnum við lausnir sem stuðla að sjálfbærari viðburðum án þess að skerða upplifun gesta.

Með reynslu af viðburðastjórnun, markaðssetningu og verkefnastjórnun vinnum við náið með viðskiptavinum okkar og aðlögum lausnir að hverju verkefni. Við getum komið inn sem hluti af teymi ykkar, tímabundið eða til lengri tíma.

Nafnið Magio vísar til töfra – og það endurspeglar þá trú okkar að bestu viðburðirnir verði til þegar skýr markmið, skapandi hugsun og fagleg framkvæmd fara saman.

Þegar þú velur Magio færðu traustan samstarfsaðila sem leggur áherslu á gagnsæi, góð samskipti og árangur.

Teymið

Að Magio standa þau Þórunn Hilda Jónasdóttir (Tótla), sem hefur fjölbreytta reynslu af viðburða- og markaðsstarfi fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins og góðgerðarsamtök, ásamt öflugu tækniteymi frá Sonik tækni: Baldur Rafn Gissurarson, Hlynur Friðriksson og Gunnar Möller.

Baldur, Hlynur, Tótla og Gunnar

Magio sá um vinnudag fyrir okkur sem tókst afburða vel. Góð staðsetning og vel utan um allt haldið. Við mundum klárlega velja Magio aftur.

-Heiða Óladóttir, mannauður og rekstur, Olís

Tótla stýrir Magio af öryggi og fagmennsku. Hún hefur skapað stemningu og skipulagt viðburði svo lengi sem hún man eftir sér.

Síðan í grunnskóla hefur hún staðið að skipulagningu fjölbreyttra viðburða, allt frá skóladiskótekum til ráðstefna, og með árunum hefur hún byggt upp víðtæka reynslu og þekkingu á viðburðastjórnun, markaðssetningu, almannatengslum og öllu því sem þarf til að skapa eftirminnilega upplifun.

Á ferli sínum hefur Tótla komið víða við að skipulagningu ráðstefna, árshátíða, góðgerðahlaupa, starfsdaga, markaðsherferða, fjölskyldudaga og kynningarbása á stórum sýningum, svo fátt eitt sé nefnt.

Hvort sem um ræðir fyrirtækjaviðburði, starfsdaga, vörukynningar eða góðgerðarkvöld er það Tótla sem sér til þess að bæði smáatriðin og heildarmyndin falli fullkomlega saman.

Með skipulagi, reynslu og örlitlum töfrum tryggir hún að hver viðburður verði eftirminnilegur og vel heppnaður.

Mynd af Totlu hja Magio

Þórunn Hilda (Tótla)

„Viðburðir og markaðssetning eru í öruggum höndum hjá Tótlu. Hún er þaulreynd, pottþét og skapandi manneskja sem skilar árangri. Ég hef unnið með Tótlu í stórum verkefnum þar sem hún sýndi ábyrgð, frjóa hugsun og einstaka hæfni í mannlegum samskiptum.”

‍- Kristín Ása Einarsdóttir, teymisstjóri hjá Háskóla Íslands.

Til í smá töfra?

Fylltu út formið hér til hliðar og við göldrum eitthvað skemmtilegt saman.