VIÐBURÐIR

Hjá Magio leggjum við okkur fram við að skapa viðburði sem talað er um löngu eftir að þeim lýkur.

Frá fyrstu hugmynd að loka tóni, sjáum við um allt skipulagið og praktísku hlutina, svo þið getið einbeitt ykkur að því sem skiptir máli, að njóta!

Við sjáum um:

✓ Hugmyndavinnu og þemahönnun
✓ Skipulag, fjármál og verkefnastjórnun
✓ Skemmtidagskrá og afþreyingu
✓ Staðsetningu, veitingar og tæknimál
✓ Framkvæmd á viðburðardegi
✓ Stemningsuppbyggingu fyrir og eftir viðburðinn

Hvort sem þið viljið glæsilegt galakvöld, ógleymanlega þemaveislu eða einstaka upplifun fyrir starfsfólkið, þá erum við til í verkefnið.

Hafðu samband og við töfrum fram viðburð sem slær í gegn.

People dancing and celebrating at a party or concert with a DJ playing music in the background, purple lighting, and balloons.
People dancing and celebrating at a party or concert with a DJ playing music in the background, purple lighting, and balloons.
borðskreytingar, árshátíð, starfsmannapartý
borðskreytingar, árshátíð, starfsmannapartý

Árshátíð/Starfsmanna - viðburðir

Árshátíð: Árshátíðin er meira en bara eitt kvöld. Hún er tækifæri til að fagna árangri, styrkja fyrirtækjamenninguna og þakka starfsfólkinu fyrir framlag þess. Magio sérhæfir sig í að skapa árshátíðir sem starfsfólkið talar um löngu eftir að þeim lýkur.

Starfsmannapartý: Happy hour, pub quiz, októberfest eða bara partý til að þjappa hópnum saman eða til að fagna áfanga. Magio getur aðstoðað ykkur við heildar skipulag.

Jólahlaðborð: Hvort sem um hefðbundið jólahlaðborð eða kvöld með skemmtilegri dagskrá og dansi. Tryggjum við viðburð sem sakapar góða stemmingu og eftirminnilegar minningar.

Fjölskylduviðburðir: eru frábær leið til að færa vinnustað og fjölskyldulíf nær hvort öðru. Við skipuleggjum skemmtilega og vandaða viðburði þar sem starfsfólk og fjölskyldur þeirra njóta samveru í afslöppuðu og skemmtilegu umhverfi. Hvort sem um er að ræða fjölskyldudaga, sumarhátíðir eða jólaviðburði, sjáum við um allt skipulagið frá upphafi til enda

Starfsdagar/hópefli

Starfsdagur er öflugt tæki til að efla samstöðu, skýra áherslur og styrkja liðsheildina. Við sjáum um hugmyndavinnu, dagskrárgerð og faglega framkvæmd þannig að dagurinn verði bæði markviss og skemmtilegur. Flæði, notaleg stemning og virk þátttaka eru lykilatriði sem tryggja að skilaboðin nái til allra.

Með skemmtilegum uppákomum á vinnutíma er hægt að brjóta upp daglegt mynstur, efla samskipti og auka starfsánægju. Magio sér um skipulag og framkvæmd fjörugs uppbrots hvort sem það er hádegiskaraokee, vísindaferðir eða minigolfmót á skrifstofunni. Smá tilbreyting getur haft mikil áhrif.

Fólk að hafa gaman á starfsegi.
Fólk að hafa gaman á starfsegi.
Mynd af veislutjaldi uppsettu með veitingum
Mynd af veislutjaldi uppsettu með veitingum

Stærri viðburðir

Hátíðir eru mikilvægur vettvangur til að efla samfélagið, skapa samveru og bjóða gestum upp á eftirminnilega upplifun. Við aðstoðum fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir við skipulag og framkvæmd hátíða af öllum stærðum og gerðum, allt frá fyrstu hugmynd að vel heppnuðum viðburði.

Við höfum reynslu af skipulagningu viðburða í tengslum við 17. júní, sjómannadaginn, 1. maí, bæjarhátíðir og aðra fjölskyldu- og samfélagsviðburði. Við sjáum um dagskrárgerð, samhæfingu, skemmtikrafta, tæknimál, afþreyingu og alla framkvæmd, með það að markmiði að skapa örugga, vel skipulagða og eftirminnilega hátíð fyrir gesti á öllum aldri.

Large illuminated letters spelling 'VELKOMMEN' with decorative golden stars and ornaments, in a dark indoor setting.
Large illuminated letters spelling 'VELKOMMEN' with decorative golden stars and ornaments, in a dark indoor setting.

Markaðsviðburðir

Vel útfærðir viðburðir eru öflugt tæki í markaðsstarfi. Við aðstoðum við að skapa viðburði sem styðja við vörumerki, miðla skýrum skilaboðum og virkja markhópa. Hvort sem um ræðir kynningar, sýningar, opnanir eða tengslamyndandi viðburði leggjum við áherslu á sterka framsetningu, skýra sögu og eftirminnilega upplifun.

Láttu ekki töfrana vanta!

A man operating DJ equipment in a warehouse with black storage boxes on orange shelves, green and blue lighting.